Taka höndum saman gegn skattsvikum

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra. mbl.is/Ómar Óskarsson

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, undirritaði í dag yfirlýsingu vegna upptöku nýs alþjóðlegs staðals um sjálfkrafa upplýsingaskipti í skattamálum. Undir þetta falla mál sem tengjast skattaupplýsingum skattgreiðenda og er þannig viðurkennt að árangursrík barátta gegn skattaundanskotum verður einungis háð á alþjóðavettvangi.

Það voru fulltrúar frá alls 51 ríki sem undirrituðu yfirlýsinguna, en undirritunin fór fram í Berlín á Global Forum, fundi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um gagnsæi og upplýsingaskipti í skattamálum.

Fram kemur í tilkynningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins að sjálfkrafa upplýsingaskipti muni hefjast á árinu 2017 vegna fjármagnstekna sem aflað er á árinu 2016. 

Felur staðall þessi í sér „víðtæk skipti á upplýsingum vegna reikninga í aflandsríkjum, m.a. um stöðu reikninga og raunverulega eigendur þeirra. Markmiðið er að stöðva glæpastarfsemi sem tengist skattaundanskotum og takast á við skattsvik. Slík glæpastarfsemi fárra óheiðarlegra aðila minnkar tekjur hins opinbera, grefur undan trúverðugleika skattkerfa og eykur skattbyrði skattgreiðenda.“

Segir frá þessu í tilkynningu ráðuneytisins.  

Kemur þar einnig fram að frumkvæði og forysta þessara ríkja hefur leitt til þess að ríki sem eru miðstöðvar fjármálaviðskipta hafa nú skuldbundið sig til þess að hlíta tiltekinni tímaáætlun.

Munu ríkin skiptast á upplýsingum frá árinu 2017 eða 2018. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK