Fyrstu níu mánuði ársins 2014 voru fluttar út vörur fyrir 426,8 milljarða króna en inn fyrir 443,2 milljarða króna fob, 473,9 milljarða króna cif. Vöruskiptin við útlönd voru því óhagstæð um 16,4 milljarða króna, reiknað á fob verðmæti, en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 23,6 milljarða á gengi hvors árs¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 40 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
Lægra verðmæti
Verðmæti vöruútflutnings var 28,2 milljörðum eða 6,2% lægra á gengi hvors árs á fyrstu níu mánuðum ársins 2014 en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 51,8% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,7% lægra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna áls. Sjávarafurðir voru 41,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 11,9% lægra en á sama tíma árið áður. Á móti kom að aukning varð á sölu skipa og flugvéla.
Fyrstu níu mánuði ársins 2014 var verðmæti vöruinnflutnings 11,8 milljörðum eða 2,7% hærri á gengi hvors árs en á sama tíma árið áður. Aukinn innflutningur var á flutningatækjum, aðallega skipum og fólksbílum.