Óttast að nýtt hrun nálgist óðfluga

David Cameron forsætisráðherra Bretlands
David Cameron forsætisráðherra Bretlands AFP

Forsætisráðherra Bretlands, David Cameron, varar við því að öll viðvörunarljós séu farin að blikka og hætta sé á öðru efnahagshruni.

Segir Cameron að öll viðvörunarljósin séu farin að blikka í mæalborði efnahagsmála heimsins og líkir hann ástandinu nú við það sem gerðist fyrir hrunið fyrir sex árum. Þetta kemur fram í grein sem Cameron ritar í Guardian í dag við lok G20-ráðstefnunnar í Brisbane í Ástralíu. 

Hann segir að óstöðugleiki og óöryggi einkenni efnahag heimsins núna og að bresku hagkerfi stafi raunveruleg hætta af þessu. Bendir hann á að samdrátturinn á evrusvæðinu sé þegar farinn að hafa áhrif á útflutning frá Bretlandi og framleiðslu.

Í síðustu viku sagði seðlabankastjóri Englands, Mark Carney, að hætta væri á stöðnun víða í Evrópu og svipað kom fram í máli forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Christine Lagarde, á fundinum í Brisbane þar sem leiðtogar 20 helstu iðnríkja heims komu saman. Sagði hún að jafnvel mætti búast við því að atvinnuleysi og lítill hagvöxtur yrði hefðbundið ástand í Evrópu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK