Fagna afnámi „fáránlegrar“ skattheimtu

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Alþingi samþykkti í dag frumvarp Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um virðisaukaskatt og vörugjöld. Vörugjöld af ýmsum raftækjum og stærri heimilistækjum falla niður um áramót, svo og af bílavarahlutum og ýmsum byggingavörum og matvöru sem inniheldur sykur og sætuefni. Munurinn á virðisaukaskattsþrepunum er minnkaður þannig að það neðra verður 11% en það efra 24% og undanþágum frá virðisaukaskatti er fækkað.

Birgir Bjarnason, formaður Félags atvinnurekenda, segir félagið fagna þessari niðurstöðu eindregið. „Við höfum áratugum saman barist fyrir afnámi vörugjaldanna, sem eru fáránleg, órökrétt og óréttlát skattheimta og hafa komið hart niður bæði á neytendum og fyrirtækjunum í landinu,“ segir Birgir.

Hann segir að þessi stóri áfangi í baráttu félagsins fyrir réttlátara rekstrarumhverfi fyrirtækja sé hvatning til að halda öðrum baráttumálum FA áfram á lofti. „Við þurfum að sýna viðlíka þrautseigju í öðrum málum til að ná þeim líka í gegn. Eitt af markmiðum okkar á til dæmis að vera að álagning tolla á innflutning sé undantekning, en ekki regla.“

Aðstöðumunur innlendra framleiðenda og innflytjenda

Í tilkynningu frá Félagi atvinnurekenda er bent á að aðeins séu sex virkir dagar til áramóta og ljóst að verslunin í landinu og ýmsar opinberar stofnanir munu þurfa að halda vel á spöðunum til undirbúa breytinguna, sem á að taka gildi 1. janúar.

Þá segir að fjármálaráðuneytið og Alþingi hafi ekki brugðist við ábendingum félagsins um aðstöðumun innlendra framleiðenda og innflytjenda þegar kemur að afnámi vörugjalda. Innlendir framleiðendur geta tekið vörugjaldið af strax um áramót við sölu á vöru sinni, en innflytjendur verða að greiða vörugjald af öllum vörum sem þeir flytja inn fyrir áramót, þótt þær séu ekki seldar fyrr en eftir áramót.

„Þetta þýðir að í einhverjum tilvikum getur verið að lækkun á verði vörunnar komi ekki fram fyrr en eitthvað er liðið á nýja árið,“ er haft eftir Birgi á heimasíðu FA.  „Því miður var ekki brugðist við tillögum um að innflytjendur fengju endurgreitt vörugjald af vörum sem þeir ættu á lager um áramót, þannig að því miður er ekki hægt að reikna með jafn merkjanlegri breytingu og ef svo hefði verið,“ segir Birgir.

Raftæki á borð ættu að lækka í verði um áramótin.
Raftæki á borð ættu að lækka í verði um áramótin. EPA
Birgir Bjarnason, formaður Félags atvinnurekenda.
Birgir Bjarnason, formaður Félags atvinnurekenda. Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK