1% mannkyns, um 47 milljónir manna, mun fljótlega eiga um helming alls auðs í heiminum, líkt og fram kom í rannsókn Oxfam og mbl.is hefur greint frá. En hvar býr þetta fólk sem virðist baða sig í peningum - á einkaeyjum? Og hvaða fólk er þetta?
Í frétt BBC um málið segir að menn á borð við Bill Gates, Warren Buffett og Mark Zuckerberg tilheyri þessu 1% mannkyns. Þá sé þar einnig að finna fólk sem kannski líti ekki á sig sem vellauðugt, en hafi borgað sínar skuldir, s.s. af húsnæði. Það flýgur ekki endilega um á einkaþotum eða heldur til á Kyrrahafseyjum.
E hvar býr þetta ríka fólk?
18 milljónir búa í Bandaríkjunum. Flestir ríkustu manna heims búa þar í landi.
3,5 milljónir búa í Frakklandi
2,9 milljónir í Bretlandi
2,8 milljónir í Þýskalandi.
Í tveimur löndum Asíu býr yfir milljón manna sem tilheyra 1%:
4 milljónir í Japan
1,6 milljónir í Kína.
Hlutfallslega búa flestir ríkustu manna heims í Sviss. Einn af hverjum tíu íbúum Sviss, um 800 þúsund af 8 milljónum, eiga eignir sem metnar eru á meira en 798 þúsund dollara, um 108 milljónir króna. Í þessum tölum, sem bankinn Gredit Suisse tók saman, er þó ekkert tillit tekið til hversu dýrt - nú eða ódýrt - er að búa í viðkomandi löndum. Því getur verið mjög mikill munur á lífsstíl þess sem býr í Kína og þess sem býr í Bretlandi, þó að eignirnar séu jafn miklar í dollurum talið.