Bjóða ótakmarkað gagnamagn

Skjáskot af Hringdu.is

Hringdu hefur ákveðið að bjóða viðskiptavinum sínum upp á ótakmarkað gagnamagn á öllum nettengingum sínum frá og með deginum í dag.

Í fréttatilkynningu kemur fram að fjarskiptafyrirtækið hóf sölu á ADSL-tengingum með ótakmörkuðu gagnamagni síðastliðið sumar og hefur nú stigið skrefið til fulls með því að hefja sölu á ljósneti og ljósleiðara með ótakmörkuðu gagnamagni.

Með ótakmörkuðu gagnamagni þurfa notendur ekki lengur að velta fyrir sér hvaðan eða hversu mikið af gögnum er sótt eða sent. Viðskiptavinir greiða fast verð og lenda aldrei í aukagjöldum.

„Á meðan helstu keppinautar okkar eru byrjaðir að telja allt gagnamagn höfum við ákveðið að hætta því,“ er haft eftir Kristni Péturssyni, forstöðumanni sölu- og þjónustusviðs, í tilkynningunni. „Við fetum þannig í fótspor frænda okkar á Norðurlöndunum sem lengi hafa selt hraða fram yfir gagnamagn.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK