Keflavíkurflugvöllur hlaut viðurkenningu

Leifsstöð.
Leifsstöð. mbl.is/SBS

Keflavíkurflugvöllur var valinn besti flugvöllur í Evrópu á síðastliðnu ári í viðamikilli þjónustukönnun meðal farþega sem framkvæmd er á öllum helstu flugvöllum um allan heim. Könnuninni er gerð á vegum alþjóðasamtaka flugvalla, Airports Council International, og tekur til fjölmargra þjónustuþátta.

Þjónustukönnunin mælir fjölmarga þætti sem snerta, t.d. kurteisi og hjálpsemi starfsfólks, þægindi við tengiflug, notalegt andrúmslofti og hreinlæti. Einnig er spurt um ánægju með afgreiðslu farangurs, aðgengi að farangurskerrum, bankaþjónustu og veitingastaði svo eitthvað sé nefnt. Næst á eftir Keflavíkurflugvelli í flokki evrópskra flugvalla eru Sheremetyevo í Moskvu, Porto í Portúgal og Möltuflugvöllur.

Þetta er í þriðja sinn sem Keflavíkurflugvöllur hefur hlotið slíka viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur. Árið 2009 var flugvöllurinn í efsta sæti í Evrópu og árið 2011 besti flugvöllur í Evrópu með færri en tvær milljónir farþega. Þá var flugvöllurinn valinn á heiðurslista samtakanna árið 2014 fyrir samfelldan árangur í þjónustukönnunum  frá árinu 2008.

Í tilkynningu segir að Isavia leggi áherslu á að veita sífellt vaxandi ferðamannafjölda framúrskarandi þjónustu á Keflavíkurflugvelli. „Stækkunarframkvæmdir sem hafnar eru við flugstöðina fela í sér  5.000 fermetra viðbót við suðurbyggingu flugstöðvarinnar og stækkun komusalar á jarðhæð norðurbyggingar. Einnig er unnið er að breytingum á verslunar- og veitingasvæði í brottfararsal á annarri hæð. Þá er unnið að gerð nýrrar þróunaráætlunar fyrir flugvallarsvæðið sem marka mun stefnu vegna frekari stækkunaráforma. “

Nánari upplýsingar um þjónustukönnun ASQ og vinningshafa árið 2014 má nálgast hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK