Atvinnuleysi minnkaði í Bandaríkjunum í febrúarmánuði, féll úr 5,7 prósentustigum og í 5,5 prósent. Hefur atvinnuleysi ekki mælst lægra í landinu frá því í maí árið 2008.
Birtar voru nýjar atvinnuleysistölur í dag fyrir febrúarmánuð. Þar kemur meðal annars fram að um 295 þúsund ný störf hafi orðið til í mánuðinum. Að meðaltali hefur störfum fjölgað um 266 þúsund á hverjum mánuði undanfarna tólf mánuði í landinu.
Störfum fjölgaði fyrst og fremst í þjónustu-, byggingar- og heilbrigðisgeiranum, en þeim fækkaði hins vegar í olíugeiranum, sem má rekja til hríðlækkandi olíuverðs.