Samþykkt var að greiða 326 milljónir króna í arð á aðalfundi Hampiðjunnar á föstudaginn. Jafnframt var samþykkt að veita stjórn félagsins heimild til kaupa á 10% af eigin hlutfé.
Sjálfkjörið var í stjórn félagsins en stjórnarmenn eru: Vilhjálmur Vilhjálmsson, stjórnarformaður, Kristján Loftsson, Auður Kristín Árnadóttir, Guðmundur Ásgeirsson og Sigrún Þorleifsdóttir.
Á fundinum var samþykkt 1,2 milljóna króna þóknun til stjórnarmanna fyrir árið en þreföld uppæð, eða 3,6 milljónir, fyrir stjórnarformanninn.
Arðurinn verður greiddur í viku 19 en síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 27. mars, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 31.mars. Arðleysisdagurinn er 30.mars.
Stærstu hluthafar Hampiðjunnar eru félagið Vogun hf. og Fiskveiðihlutafélagið Venus hf., sem er að mestu í eigu Kristjáns og Birnu Loftsbarna og Kristínar, Sigríðar og Árna Vilhjálmsbarna. Vogun hf. er þá í eigu Hvals hf., þar sem stærsti hluthafinn er Fiskveiðihlutafélagið Venus.