Nýja tengivirkið er við hlið kísilvers United Silicon (USi) við Stakksbraut og hannað með hugsanlega stækkun í huga. Húsin verða sambyggð á einni hæð, samtals 750 fermetrar að grunnfleti.
Undirbúningur tengivirkisins Stakks hófst hjá Landsneti haustið 2014 í framhaldi af samningi um flutning raforku til kísilvers USi í Helguvík. Hann kveður á um að tengingin verði tilbúin 1. febrúar 2016 en auk nýja tengivirkisins Stakks, felur verkefnið í sér uppsetningu á nýjum rofa í tengivirkinu á Fitjum og 9 km langan 132 kV jarðstreng milli Fitja og Helguvíkur. Gengið var frá samningum um kaup á jarðstreng og spenni árið 2014. Samið var við þýska fyrirtækið Nexans um jarðstrengskaupin og verður hann lagður sumarið 2015.