ALM Fjármálaráðgjöf hf. hefur breytt um firmanafn og heitir hér eftir ALM Verðbréf hf. Breytingin er liður í stefnumörkun félagsins og endurspeglar betur starfsemi þess, segir í fréttatilkynningu.
ALM Verðbréf veitir heildstæða þjónustu á sviði fjármála fyrir fyrirtæki, stofnanir, lífeyrissjóði og einstaklinga.
Vegna aukinna umsvifa flutti ALM Verðbréf starfsemi sína í nýtt húsnæði á síðasta ári. Starfsstöð félagsins er nú í Sundagörðum 2, 104 Reykjavík.
Þá er ALM Verðbréf hf. rekstraraðili fjárfestingafélagsins Kjölfestu, sem jafnframt er með starfsstöð í Sundagörðum 2.
ALM Verðbréf hf. er verðbréfafyrirtæki sem starfar samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki og hefur haft starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu frá árinu 2010. Hægt er að nálgast upplýsingar um félagið og starfsemi þess á www.almv.is.