Seldist fyrir 3,3 milljarða í Eik

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar.
Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar. mbl.is/Ómar Óskarsson

Alls voru 485 milljónir hluta fyrir um 3,3 milljarða króna seldir í hlutafjárútboði Eikar fasteignafélags hf. í gær. Sölugengið var 6,80 krónur á hlut en um 2.100 fjárfestar óskuðu eftir að kaupa hlutabréf fyrir samtals um 8,3 milljarða króna. Markaðsvirði hlutafjár Eikar fasteignafélags er 23,6 milljarðar. 

Þar bauð Arion banki til sölu 485 milljónir hluta eða samtals 14% hlutafjár í félaginu í gegnum tvær tilboðsbækur, A og B. 

Samtals fengu um 1.200 fjárfestar úthlutað í báðum tilboðsbókum á genginu 6,80 krónur á hlut. Fjárfestum í tilboðsbók A verður úthlutað um 55% af áskrift, en þó þannig að áskriftir verða ekki skertar undir 500 þúsund krónur og lægri fjárhæðir standa óskertar. Áskriftir sem bárust á genginu 6,80 krónur á hlut eða hærra í tilboðsbók B verða óskertar.

Fjárfestum verða sendar upplýsingar um úthlutun ásamt greiðslufyrirmælum eftir að Kauphöll Íslands hefur staðfest að hlutir í Eik fasteignafélagi hf. verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Gert er ráð fyrir að eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins verði 27. apríl næstkomandi. Fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingarbankasviðs Arion banka hefur umsjón með útboðinu og fyrirhugaðri skráningu félagsins í Kauphöll en áætlað er að miðvikudaginn 29. apríl næstkomandi geti viðskipti hafist með hluti í Eik fasteignafélagi á Aðalmarkaði.

Heildarhlutafé Eikar fasteignafélags er 3.465.180.435 og er hver hlutur 1 kr. að nafnverði. Eik fasteignafélag á sjálft 8.800.000 hluti í félaginu. 

Vaxandi hlutabréfamarkaður

„Við þökkum það traust sem fjárfestar sýna félaginu sem fjárfestingarkosti og bjóðum nýja hluthafa velkomna. Eik fasteignafélag hefur vaxið á undanförnum árum með fjárfestingum í vel staðsettum eignum og markar skráning á Aðalmarkað Nasdaq Iceland mikil tímamót fyrir félagið. Það verður spennandi að takast á við ný verkefni með breiðari hópi hluthafa,“ er haft eftir Garðari Hannesi Friðjónssyni, forstjóra Eikar fasteignafélags, í tilkynningu. 

„Það er ánægjulegt hvað útboð Eikar fasteignafélags gekk vel. Eik fasteignafélag er eitt af stærstu fasteignafélögum landsins og verður góð viðbót inn á hlutabréfamarkaðinn. Skráning Eikar fasteignafélags á markað er önnur skráningin sem Arion banki hefur umsjón með á árinu, en bankinn hefur séð um rúmlega helming allra skráninga á hlutabréfamarkað frá árinu 2009. Það skiptir miklu að hlutabréfamarkaðurinn haldi áfram að vaxa og að fjárfestum bjóðist stöðugt fleiri fjárfestingarkostir,“ er haft eftir Höskuldi H. Ólafssyni, bankastjóra Arion banka.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK