Útibú Landsbankans og þau sem áður heyrðu undir Sparisjóð Vestmannaeyja á Höfn og Selfossi verða sameinuð frá og með mánudeginum 27. apríl. Útibúin verða til að byrja með rekin í húsnæði Landsbankans á þessum stöðum, en að loknum lagfæringum á Höfn mun bankinn flytja starfsemi sína í húsnæði sparisjóðsins. Húsnæði Landsbankans á Höfn verður þá selt.
Þá hefur verið ákveðið að reka áfram afgreiðslur á Breiðdalsvík og á Djúpavogi og hefur sveitarstjórnum þessara staða verið tilkynnt um það.
Við sameiningu útibúa á Selfossi og Höfn láta 6 starfsmenn af störfum, en tveir þeirra óskuðu ekki eftir áframhaldandi starfi í sameinuðu útibúi. Þá flyst einn starfsmaður á höfuðborgarsvæðið að eigin ósk og fær starf hjá bankanum þar.
Fækkun starfsmanna á Höfn og Selfossi er óhjákvæmileg og endurspeglar þær miklu breytingar sem orðið hafa á bankaviðskiptum á síðustu árum, m.a. færri heimsóknir í bankaútibú og sívaxandi nýtingu á rafrænum lausnum s.s. netbönkum.
Í tilkynningu kemur fram að Landsbankinn og starfsmenn hans muni leitast við að tryggja að sameining Landsbankans og Sparisjóðs Vestmannaeyja valdi viðskiptavinum sem minnstri röskun. Strax á mánudag geta viðskiptavinir sjóðsins leitað með öll sín mál í sameinuð útibú á Höfn og Selfossi. Netbanki og greiðslukort viðskiptavina Sparisjóðs Vestmannaeyja munu áfram virka eins og þau hafa gert. Sameiningu mun svo ljúka að fullu síðar á árinu með opnun endurnýjaðs útibús Landsbankans í Vestamannaeyjum.
Landsbankinn rekur eftir þessar breytingar 35 útibú og afgreiðslur um land allt.