Í framhaldi af breytingum í framkvæmdastjórn félagsins hefur N1 breytt skipuriti til að styðja við sókn á þeim mörkuðum sem félagið starfar á.
Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.
Forstjóri N1 er Eggert Þór Kristófersson en beint undir hann heyra fjögur svið, einstaklingssvið, fyrirtækjasvið, rekstrarsvið og fjármálasvið. Á einstaklingssviði eru þjónustustöðvar, markaðsdeild, þjónustuver og framkvæmdadeild.
Markaðssvið hefur verið lagt niður og færist markaðsdeild við þá breytingu á einstaklingssvið.
Framkvæmdastjóri einstaklingssviðs er Guðný Rósa Þorvarðardóttir. Hinrik Örn Bjarnason er framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og undir sviðið heyra viðskiptastjórnun, verslanir, verkstæði og vöruhús.Verkstæði voru áður á einstaklingssviði og vöruhús á fjármálasviði.
Rekstrarsvið er nýtt svið og er Kolbeinn Finnsson framkvæmdastjóri þess. Undir rekstrarsvið heyrir mannauður, gæðamál og verkefnastofa sem áður voru á starfsmannasviði ásamt upplýsingatækni sem var á fjármálasviði. Á fjármálasviði eru reikningshald, hagdeild, áhættu- og fjárstýring og innheimta. Framkvæmdastjóri fjármálasviðs er Pétur Hafsteinsson.
Líkt og mbl hefur greint frá hafa töluverðar breytingar verðir gerðar á yfirstjórn félagsins að undanförnu. Eggert Benedikt Guðmundsson lét af störfum sem forstjóri í lok febrúar og var Eggert Þór, fyrrum fjármálastjóri félagsins, ráðinn í hans stað.
Pétur Hafsteinsson var þá ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs í stað Eggerts í síðasta mánuði.
Þá lét Halldór Harðarson af störfum sem framkvæmdastjóri markaðssviðs N1 einnig af störfum í febrúar og var ráðinn markaðsstjóri Arion banka. Þyrí Dröfn Konráðsdóttir var ráðin markaðsstjóri í mars.
Ingunn Sveinsdóttir, fyrrum framkvæmdastjóri einstaklingssviðs N1, lét af störfum í mars.