Sunna til Orkuveitunnar

Sunna Valgerðardóttir
Sunna Valgerðardóttir

Sunna Valgerðardóttir hefur verið ráðin sérfræðingur hjá samskiptamálum Orkuveitu Reykjavíkur.

Sunna er með BA-próf í fjölmiðla- og nútímafræði frá Háskólanum á Akureyri og diplóma í margmiðlunarhönnun frá Odense Tekniske Skole. Hún starfaði á ritstjórn Fréttablaðsins frá 2009 til 2013. Þá hóf hún störf á fréttastofu RÚV, þar sem hún hefur starfað síðan. Sunna hlaut Íslensku blaðamannaverðlaunin fyrir umfjöllun ársins 2012, segir í tilkynningu.

Starfið var auglýst í marsmánuði síðastliðnum og var Sunna ráðin úr hópi um 50 umsækjenda. Á meðal verkefna Sunnu verður að taka þátt í hönnun upplýsingaefnis og að þróa notkun hinna ýmsu nýju samskiptamiðla hjá OR ásamt því að vera talsmaður fyrirtækja innan samstæðu Orkuveitunnar. Sunna mun hefja störf um miðjan maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka