Vegna verkfalls lögfræðinga hjá Sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu var engum kaupsamningum þinglýst á tímabilinu 15. maí til og með 21. maí 2015. Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár Íslands.
Á sama tíma var 17 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 6 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 376 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,1 milljón króna.
Á sama tíma var 16 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 13 samningar um eignir í fjölbýli og 3 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 436 milljónir króna og meðalupphæð á samning 27,2 milljónir króna.
Á sama tíma var 18 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli, 12 samningar um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 383 milljónir króna og meðalupphæð á samning 21,3 milljónir króna.