Helgi Magnússon, varaformaður stjórnar N1, keypti í dag hluti í félaginu fyrir tæpar 109 milljónir króna. Alls keypti hann þrjár milljónir bréfa á genginu 36,3.
Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Gengi bréfa í N1 hefur hækkað um 4,72% í dag og velta með hlutabréfin nemur 677 milljónum króna frá opnun markaða í morgun.
Fyrsta uppgjör ársins hjá N1 var kynnt í gær og var það yfir væntingum. Brúttó framlegð var 20% og hefur hún aldrei verið jafn há síðan félagið kom á markað. Rekstrarhagnaður félagsins var um 95 milljónir króna á tímabilinu og er það mikill viðsnúningur frá fyrra ári þegar rekstrartap nam 59 milljónum króna en slök loðnuvertíð hafði mikil áhrif á afkomu félagsins í fyrra.
Sala dróst saman um 13% á milli ára og nam 9,9 milljörðum króna.
Í samtali við Morgunblaðið í lok síðasta árs hafnaði Helgi Magnússon því alfarið að það kunni að skapa hættu á hagsmunaárekstrum að hann sé umsvifamikill fjárfestir í félögum í Kauphöllinni samtímis því að vera varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðs verslunarmanna. „Þessir hagsmunir fara algjörlega saman,“ sagði Helgi.
Frétt mbl.is: Hagsmunirnir fara saman