Lindarvatn ehf., eigandi fasteigna á Landsímareitnum, hefur nýtt undanfarna mánuði til að kanna nánar möguleika á þróun og nýtingu eignanna. Niðurstaða þeirrar vinnu er að halda áfram með áform um hóteluppbyggingu á reitnum.
Í tilkynningu frá félaginu segir að liður í þessari vinnu hafi verið að ná saman við Alþingi um að falla frá kæru vegna deiliskipulags um reitinn og hefur slíkt samkomulag nú náðst.
Mun eigandi eignarinnar því hefja vinnu á næstunni við hönnun, skipulag og útlit á hóteli í góðu samstarfi við Reykjavíkurborg. Þá mun félagið fara í viðræður við mögulega rekstraraðila hótels.
Auk þess hefur félagið gengið frá samningum við nýjan rekstraraðila NASA, sem hyggst opna í ágúst.
Líkt og mbl hefur áður greint frá er það er Ásgeir Kolbeinsson sem fer fyrir eigendahópi nýja félagsins, sem var stofnað um rekstur Nasa. Áætlað er að gera margvíslegar skipulagsbreytingar á húsinu er hugsunin að hámarka notkunarmöguleika þess á sama tíma og húsnæðinu verður sýnd virðing.
Frétt mbl.is: Nýtt félag stofnað um rekstur Nasa