„Kröftugur“ hagvöxtur á fyrsta fjórðungi

Gert er ráð fyrir að vöxtur í einkaneyslu á árinu …
Gert er ráð fyrir að vöxtur í einkaneyslu á árinu verði drifinn áfram af töluverðum vexti kaupmáttar. mbl.is/Kristinn

Hagfræðideild Landsbankans segir að töluvert kröftugur hagvöxtur hafi mælst á fyrsta ársfjórðungi, en vöxturinn nam 2,9% borið saman við sama fjórðung árið áður. Alls jukust þjóðarútgjöld, sem er samtala einkaneyslu, samneyslu og fjármunamyndunar, um 9,9% en þau hafa ekki vaxið jafn hratt síðan á öðrum ársfjórðungi 2006.

Vöxturinn í þjóðarútgjöldum var að miklu leyti borinn uppi af fjármunamyndun en áhrif af einkaneyslu vógu þar einnig töluvert, að því er fram kemur í Hagsjá hagfræðideildarinnar.

Það sem skýrir töluvert lægri vöxt landsframleiðslu en þjóðarútgjalda var neikvætt framlag utanríkisviðskipta. Útflutningur jókst um 2,7% en innflutningur um 23% en verulegur hluti af auknum innflutningi skýrist af flugvélakaupum.

Hagfræðideildin bendir á að einkaneysla hafi aukist um 3,9% sem sé í samræmi við kröftugan vöxt á síðustu fjórðungum en meðalvöxtur í einkaneyslu á síðustu fjórum fjórðungum hefur verið 3,8%.

Þjóðhagsspá hagfræðideildar frá því í maí gerir ráð fyrir 4,5% vexti einkaneyslu yfir árið í heild og að sá vöxtur verði drifinn áfram af töluverðum vexti kaupmáttar ásamt auðsáhrifum vegna skuldaniðurgreiðslu ríkisstjórnarinnar á verðtryggðum húsnæðislánum einstaklinga.

Þannig er gert ráð fyrir að kaupmáttur aukist um 5,8% á þessu ári sökum verulegra launahækkana en þegar áhrifa þeirra fer síðan að gæta á verðbólgu verði vöxtur kaupmáttar lítill á næstu árum þrátt fyrir umtalsverðar launahækkanir.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK