Skattbyrði einstaklinga og fyrirtækja hefur þyngst og allir helstu skattstofnar hafa hækkað milli ára. Hlutfallslega mest aukning var á fjármagnstekjuskatti einstaklinga eða sem nam 39%, fyrirtækjaskatti sem hækkaði um 37%. Þá hækkuðu tryggingagjöld um 5% milli ára þrátt fyrir að dregið hafi úr atvinnuleysi á sama tíma.
Þetta kemur fram í greiningu Viðskiptaráðs Íslands á ríkisreikningi ársins 2014 sem var gefinn út í júní.
Bent er á að aðhaldi í ríkisfjármálum virðist lokið í bili þar sem launakostnaður jókst um 6% á milli ára og önnur rekstrargjöld um 4%. Samtals nemur útgjaldaaukningin vegna þessara tveggja liða um 13 milljörðum króna milli ára. Auk þessa hækkaði vaxtakostnaður ríkissjóðs um 4 milljarða króna á milli ára og nam 79 milljörðum árið 2014.
Útgjöld ríkissjóðs jukust því samtals um 17 milljarða króna á milli ára sem jafngildir 3% hækkun.
Í grein Viðskiptaráðs segir að nauðsynlegt sé að forgangsraða verkefnum stjórnvalda. „Það mun seint teljast sjálfbær þróun að auka ríkisútgjöld á sama tíma og opinberar skuldir eru tvisvar til þrisvar sinnum hærri en hjá öðrum Norðurlöndum og hækkandi meðalaldur reynist Íslendingum sífellt þyngri baggi.“
Það er skoðun Viðskiptaráðs að fjölmörg verkefni séu höndum hins opinbera í dag sem einkaaðilar eru betur til þess fallnir að leysa af hendi. Það gæti hvort heldur verið í formi aukins einkarekstrar eða minni aðkomu hins opinbera á ákveðnum sviðum.
„Á uppgangstímum er hins vegar heppilegra að stjórnvöld dragi úr umsvifum hins opinbera með forgangsröðun verkefna og niðurgreiðslu opinberra skulda. Þannig verður best dregið úr hagsveiflum og stutt við efnahagslegan stöðugleika á komandi árum,“ segir Viðskiptaráð.