Bjarki Bergmann Gunnlaugsson, fyrrum fótboltamaður og fjárfestir, var úrskurðaður gjaldþrota 15. júní síðastliðinn. Bjarki hefur ásamt bróður sínum, Arnari, verið umsvifamikill í viðskiptalífinu á síðustu árum.
Í Lögbirtingablaðinu í dag kemur fram að kröfuhafar hafi þrjá mánuði til þess að lýsa kröfum í búið.
Ekki náðist í Bjarka við vinnslu fréttarinnar en líkt og að framan greinir hefur Bjarki verið áberandi í viðskiptalífinu.
Tvíburabræðurnir Arnar og Bjarki áttu m.a. um tíma hlut í félaginu Hanza-hópurinn ehf., en seldu hann frá sér árið 2007 til félagsins Merlu ehf., sem er félag Róberts Melax, stofnanda Lyfju og annars meðlimar í Hanza-hópnum.
Félagið var stórtækt í byggingarframkvæmdum í aðdraganda hrunsins og var um tíma eigandi fjölbýlishúsaverkefnis á Arnarneshæð í Garðabæ. Þá stóð félagið einnig fyrir framkvæmdunum á Rafha-reitnum í Hafnarfirði og endurbyggingu gamla DV-hússins að Þverholti 11, framkvæmdir sem félagið Þverholt 11 ehf. hélt utan um, en Hanza-hópurinn var eigandi þess félags.
Á árinu 2008 stofnuðu bræðurnir þá fjárfestingarfélagið PODA Investments ásamt Birni Steinbekk. Félagið var stofnað til þess að byggja og selja umhverfisvæn einbýlishús á Florida.
Á árinu 2012 byggðu bræðurnir tvö ný raðhús á Þórshöfn í gegnum leigufélagið V Laugavegur, sem var í þeirra eigu. Sveitarfélagið Langanesbyggð gerði síðan 10 ára leigusamning við leigufélagið.
Á síðasta ári keypti félag í eigu bræðranna einnig tvö fjölbýlishús af Íbúðalánasjóði á Selfossi en samkvæmt frétt Sunnlenska fréttablaðsins ætluðu þeir að leigja þær út. Samkvæmt heimildum blaðsins var kaupverðið vel á sjötta hundrað milljóna króna.
Bræðurnir hafa þá einnig átt veitingastaðinn Domo, sem var í Þingholtsstræti. Staðinn áttu þeir ásamt Kormáki Geirharðssyni og Skildi Sigurjónssyni, sem kenndir eru við Ölstofuna, í gegnum félagið Kolskegg. Bjarki keypti staðinn af félaginu í desember 2009 en kaupin rötuðu fyrir Hæstarétt árið 2013 vegna sjálfsskuldarábyrgðar á skuldabréfum.
Í kaupsamningi hafði komið fram að Bjarki tæki yfir skuld félagsins við Landsbankann en hún var grundvölluð á fjórum skuldabréfum, samtals að fjárhæð um 36 milljónir króna. Kveðið var á um að Bjarki yrði í sjálfskuldarábyrgð fyrir 26 milljónum króna en allir saman voru í ábyrgð fyrir 10 milljónum.
Þegar vanskil urðu á bréfinu kröfðust þeir þess að sjálfskuldaábyrgðin yrði felld niður. Bankinn varð ekki við því og fjórmenningarnir höfðuðu því mál en Hæstiréttur féllst ekki á rök þeirra og staðfesti ábyrgðina.
Bjarki hefur einnig átt farsælan fótboltaferil og m.a. leikið með liðunum FH, KR, Val, ÍA.
Á árinu 2011 stofnaði hann umboðsskrifstofuna Total Football ásamt umboðsmanninum Magnúsi Agnari Magnússyni, fótboltamanninum Arnóri Guðjohnsen og Arnari bróður sínum.