5,9 milljarða halli á vöruskiptum

Iðnaðarvörur voru 54,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 29,9% …
Iðnaðarvörur voru 54,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 29,9% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

5,9 milljarða króna halli var á vöruskiptum við útlönd á fyrri helmingi ársins 2015, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Á sama tíma í fyrra voru vöruskiptin óhagstæð um 9,8 milljarða króna. Vöruskiptajöfnuðurinn er því 3,9 milljörðum hagstæðari í ár en í fyrra.
Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir 56,2 milljarða króna og inn fyrir 66,4 milljarða króna fob (70,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 10,2 milljarða króna. Í júní 2014 voru vöruskiptin óhagstæð um 12 milljarða króna á gengi hvors árs.

Fyrstu sex mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir rúma 332,4 milljarða króna en inn fyrir tæpa 338,4 milljarða króna fob (360,7 milljarða króna cif). Halli var því á vöruskiptum við útlönd sem nam 5,9 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti.
 
Fyrstu sex mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 61,3 milljörðum eða 22,6% hærra, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 54,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 29,9% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 42,1% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 23,2% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli.


Fyrstu sex mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 57,5 milljörðum eða 20,5% hærra, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru og flugvéla.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK