Í vor auglýsti RÚV eftir frétta- og dagskrárgerðarfólki um allt land en nú hefur Halla Ólafsdóttir verið ráðin fyrir Vesturland og Vestfirði, með aðsetur á Ísafirði. Halla er 29 ára gamall mannfræðingur með áherslu á sjónræna miðlun og hefur talsverða reynslu af heimildamyndagerð.
Vestfirski fréttamiðillinn bb.is greinir frá þessu.
Halla starfar nú í Hvannalinum þar sem hún lítur eftir mannvirkjaleifum Fjalla Eyvinds og Höllu en í hast flytur hún vestur og hefur störf frá RÚV.
Í frétt bb.is er vísað til þess að starfsemi RÚV á landsbyggðinni hafi nokkrum sinnum verið skorin niður undanfarin ár. Hætt var að senda út frá Ísafirði árið 2008 og svæðisútvarp Austurlands var lagt niður í ársbyrjun 2010. Nú stendur hins vegar til að auka áherslu á fréttaflutning og dagskrárgerð af landsbyggðinni.