Rapparinn 50 Cent segist eyða um 108 þúsundum dala, sem jafngildir um 14,5 milljónum íslenskra króna, í hverjum mánuði. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í gjaldþrotabeiðni hans.
Eins og kunnugt er hefur rapparinn óskað eftir gjaldþrotaskiptum.
Mánaðarlegar tekjur hans nema um 185 þúsundum dala, sem jafngildir um 24,8 milljónum króna, en þær samanstanda fyrst og fremst af höfundarlaunum og arði af fjárfestingum hans. Þá eyðir hann um 72 þúsundum dala í viðhald á glæsivillu sinni, að því er segir í frétt USA Today.
Húsið er með 21 svefnherbergi, 24 baðherbergjum, skemmtistað, bíósal, körfuboltavelli, sundlaug og stórri jörð.
Rapparinn óskaði eftir gjaldþrotaskiptum eftir að dómstóll komst að þeirri niðurstöðu að hann ætti að greiða konu, sem hann deildi kynlífsmyndbandi af á internetinu, um 668 milljónir króna.
Samkvæmt málsgögnum nema skuldir hans fimmtíu milljónum dala.