Eitt stórt pýramídasvindl á Íslandi

American Banker fjallar um íslenska bankahrunið.
American Banker fjallar um íslenska bankahrunið. mbl.is/Golli

Aðstæðurnar við bankahrunið á Íslandi voru sérstakar þar sem í grunninn var um að ræða eitt risastórt pýramídasvindl. Þetta hefur American Banker eftir Guðrúnu Johnsen í grein um eftirmál bankahrunsins á Íslandi.

Í greininni er vísað til þess að margir Bandaríkjamenn hafi bent á að þarlend stjórnvöld hefðu átt að fara sömu leið og þau íslensku - leyfa bönkunum að fara í þrot og refsa ábyrgum. „Við nánari skoðun er samanburðurinn hins vegar ekki einfaldur,“ skrifar blaðamaður American Banker, sem m.a. ræðir við Guðrúnu, sem er lektor í fjármálahagfræði við HÍ og starfaði með Rannsóknarnefnd Alþingis við rannsókn á falli bankanna. Einnig er rætt við Eyvind G. Gunnarsson, forseta lagadeildar HÍ.

Guðrún bendir á að bankakerfið hafi í raun fallið saman á um þremur dögum og að fall stóru viðskiptabankanna þriggja hafi haft áhrif á alla landsmenn.

Aðrir kostir ekki í boði

Eyvindur vísar til þess að íslensk stjórnvöld hafi í raun ekki átt annarra kosta völ vegna gífurlegrar stærðar bankakerfisins en líkt og fram hefur komið námu heildareignir bankanna um nífaldri landsframleiðslu Íslands í lok ársins 2007.

Þá hafi almenningur kallað eftir því að bankamenn yrðu dregnir fyrir dóm. „Þegar kreppan skall á í október 2008 gekk þjóðin hálfpartinn af göflunum,“ er haft eftir Eyvindi. „Vegna þessa andrúmslofts hikuðu stjórnmálamenn ekki við að gera eitthvað í þessu.“

Guðrún bendir á að sérstakur saksóknari hafi þá verið skipaður sem fékk aðgang að bókhaldi bankanna. Hún segir meginmuninn milli bankarannsókna í Bandaríkjunum og á Íslandi hafa falist í því. Saksóknari fékk þennan víðtæka aðgang og pólitíkusar höfðu ekki nein áhrif á rannsóknina.

Þá vísar Eyvindur til þess að bankarnir hafi þegar verið komnir í slitameðferð og því hafi ekki verið neinn hvati til þess að láta þá líta betur út en þeir gerðu.

Grein American Banker.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK