Dunkin' Donuts í Kringluna

Árni Pétur Jónsson, forstjóri Dunkin´ Donuts á Íslandi, og Sigurjón …
Árni Pétur Jónsson, forstjóri Dunkin´ Donuts á Íslandi, og Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar

Kaffihúsakeðjan Dunkin' Donuts opnar sitt annað kaffihús á Íslandi í október næstkomandi og verður það staðsett á fyrstu hæð í Kringlunni.

Árni Pétur Jónsson, forstjóri Dunkin' Donuts á Íslandi, segir í fréttatilkynningu það eðlilega þróun mála að annað kaffihúsið hér á landi verði í verslunarmiðstöðinni.

Gert er ráð fyrir að ráða þurfi í kringum 10 manns fyrir opnunina og eftir að þeim ráðningum lýkur eru um 30 manns í vinnu hjá Dunkin' Donuts á Íslandi.

Til stendur að Dunkin' Donuts  staðirnir verði orðnir 16 talsins á Íslandi eftir fimm ár.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK