Valencia Terrell er amma. Hún er heimilislaus. Hún dvelur tímabundið á heimili vinar síns í Atlantic City í New Jersey. Terrell vann í spilavíti árum saman en allt breyttist er fellibylurinn Sandy eyðilagði hús hennar og hún varð að hætta að vinna til að sjá um fjölskyldumeðlimi sem voru í vanda.
Nú þarf hún að reiða sig á matargjafir og fer með fjölskylduna í súpueldhús reglulega.
Efahagsástandið í Atlantic City hafði versnað smátt og smátt í mörg ár þar til stóri skellurinn kom árið 2014. Þá var fjórum stærstu spilavítum borgarinnar lokað og um 8.000 manns misstu vinnuna. Atvinnuleysið mælist 11% sem er helmingi meira en landsmeðaltal. Nú er svo komið að félagsleg aðstoð sem fólk hefur getað fengið er að verða af skornum skammti, fólk á ekki lengur rétt á bótum og margir þurfa að leita á náðir góðgerðarsamtaka.
Samtökin Atlantic City Rescue Mission gefa um 700 máltíðir á hverjum degi og veita um 300 manns húsaskjól. Margar fjölskyldur, sem hafa í engin hús að venda, þurfa að reiða sig á þjónustu þeirra. Mörg önnur samtök reyna að hjálpa, gefa m.a. brauð og aðrar matvörur. Ásóknin hefur margfaldast frá því að spilavítin lokuðu.
Hvergi í Bandaríkjunum eru fleiri heimili í uppboðsferli en í Atlantic-sýslu eða 1 af hverjum 113.