Pia Nygaard Larsen hefur verið ráðin í starf sölustjóra Bacco Seaproducts en hún verður með aðsetur í Danmörku.
Í tilkynningu segir að Pia hafi reynslu af sölumálum í sjávarútvegi og víðtæka tungumálakunnáttu. Undanfarin átta ár hefur hún gegnt störfum fyrir Marz Seafood og þar áður starfaði hún um árabil fyrir Nowaco A/S og Royal Greenland Seafood A/S.
Þá segir að ráðningin sé liður í því að efla sölustarfsemi Bacco Seaproducts á heimsvísu og bæta enn frekar þjónustuna við birgja fyrirtækisins.
Bacco Seaproducts er útflutningsfyrirtæki sem varð til um síðustu áramót þegar fyrirtækin Bacco ehf. og Seaproducts Iceland ehf. gengu í eina sæng, en bæði höfðu fyrirtækin flutt saltaðar og frosnar fiskafurðir á erlenda markaði um árabil.