Fær 400 ný sjúkrarúm að gjöf

Gömlu rúmin eru mörg hver hálfrar aldar gömul.
Gömlu rúmin eru mörg hver hálfrar aldar gömul. Mynd/Landsspítalinn

Arion banki hefur fært Landspítala 150 milljónir króna að gjöf sem spítalinn mun nota til kaupa á nýjum sjúkrarúmum og dýnum.

Afhendingin fór fram í dag á Landspítala við Hringbraut en í tilkynningu frá spítalanum segir að brýn þörf hafi verið innan spítalans á að endurnýja fjölda rúma sem komin eru til ára sinna.

Með gjöfinni verður spítalanum gert mögulegt að kaupa 400 ný sjúkrarúm og dýnur á næstu tveimur árum og verða gömlu rúmin jafnframt tekin úr notkun.

„Á hverju ári eru legudagar sjúklinga á Landspítala um 220 þúsund og mun endurnýjun sjúkrarúma af þessari stærðargráðu hafa áhrif á þúsundir einstaklinga, bæði sjúklinga og starfsfólk,“ segir í tilkynningu frá Landspítalanum.

Gert er ráð fyrir að fyrstu sjúkrarúmin verði tekin í notkun eftir sex til átta vikur.

Staðan á sjúkrarúmum spítalans var kortlögð í árslok 2013 en í ljós kom að af þeim 800 rúmum sem eru í notkun eru um 400 gömul járnrúm. Járnrúmin eru ýmist fótstigin eða rafknúin en rafvirkjar spítalans hafa séð um að rafvæða hluta af gömlu rúmunum til þess að bæta ástand þeirra. Aðstæður eru sérlega slæmar á geðsviði spítalans en þar er, auk gömlu rúmanna, einnig notast við bedda og svefnsófa fyrir sjúklinga.

Of stutt og þola ekki mikla þyngd

,,Við erum afar þakklát Arion banka fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem mun snerta bæði sjúklinga og starfsfólk spítalans. Járnrúmin sem eru mörg hver hálfrar aldar gömul eru úreld og þjóna ekki sama hlutverki og nútíma rúm sem í dag eru lækningatæki. Gömlu rúmin eru of stutt fyrir marga sjúklinga okkar auk þess sem þau þola ekki mikla þyngd. Til viðbótar hefur verið erfitt fyrir starfsfólk að vinna við rúmin þar sem þau eru mörg hver rangskreið og erfitt er að hækka þau og lækka. Gjöf Arion banka mun breyta daglegu lífi sjúklinga og starfsfólks á spítalanum," er haft eftir Páli Matthíassyni, forstjóra Landspítala, í tilkynningu.

Láta gott af sér leiða þegar vel gengur

„Við viljum leggja okkar af mörkum til samfélagsins og málefni heilbrigðiskerfisins snerta okkur öll. Við hjá Arion banka höfum í gegnum tíðina stutt við heilbrigðisstofnanir víða um land með tækjagjöfum, þannig að þetta málefni er okkur sérstaklega hugleikið. Nú þegar rekstur og uppbygging bankans gengur vel þá viljum við láta gott af okkur leiða með þessum hætti. Við höfum undanfarið átt samstarf við Landspítala á sviði straumlínustjórnunar og kynnst spítalanum ágætlega. Við fengum fregnir af afleitu ástandi sjúkrarúma og að það kæmi niður á bæði sjúklingum og starfsfólki. Það er okkur því sérstaklega ánægjulegt að geta lagt okkar af mörkum til að bæta líðan sjúklinga og um leið starfsaðstæður starfsfólks spítalans,“ er þá haft eftir Höskuldi H. Ólafssyni, bankastjóra Arion banka.

Í tilkynningu segir að góðar dýnur stuðli ekki aðeins að betri líðan sjúklinga heldur fyrirbyggja líka sáramyndun sem kostar ómælda peninga í formi sáraumbúða, sýklalyfja, flókinnar sárameðferðar, lengri legutíma auk þjáninga sem slíku fylgir fyrir sjúklinginn.

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala og Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion …
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala og Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka. Mynd/Landsspítali Háskólasjúkrahús
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK