5.000 vildu kaupa hlut í Símanum

Orri Hauksson, forstjóri Símans.
Orri Hauksson, forstjóri Símans. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Umframeftirspurn var í útboði Símans á 21 prósent hlut í bankanum. Tæplega 5.000 fjárfestar óskuðu eftir kaupum á hlutabréfum í Símanum fyrir samtals um 33 milljarða króna og er niðurstaða bankans að selja um 4.600 þeirra samtals 21% hlut fyrir um 6,7 milljarða króna.

Útboðinu lauk í gær og var vegið meðalgengi í þeim viðskiptum 3,33 krónur á hlut. Miðað við þá niðurstöðu er markaðsvirði alls hlutafjár í Símanum um 32 milljarðar króna.

Í ljósi mikillar eftirspurnar hefur Arion banki ákveðið að fullnýta heimild sína til að stækka útboðið og selja 2.026,5 milljónir hluta sem eru 21% hlutafjár í félaginu. Nú liggur fyrir að 5% hlutafjár verða seld á genginu 3,1 krónur á hlut í tilboðsbók A, þar sem mögulegt verðbil var 2,7-3,1, og 16% seld á genginu 3,4 krónur á hlut í tilboðsbók B, þar sem lágmarksgengi var 2,7.

Fjárfestar í tilboðsbók A fá úthlutað að hámarki um 340 þúsund krónum að kaupverði og verða lægri áskriftir ekki skertar. Áskriftir sem bárust á verði yfir genginu 3,4 krónur á hlut í tilboðsbók B verða óskertar en áskriftir sem bárust á því gengi verða skornar niður hlutfallslega og nemur heildarskerðing þeirra um 300 milljónum króna.

Fjárfestum verða sendar upplýsingar um úthlutun ásamt greiðslufyrirmælum eftir að Nasdaq Iceland hefur staðfest að hlutir í Símanum hf. verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Gert er ráð fyrir að eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins verði 13. október næstkomandi.

Fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingabankasviðs Arion banka hefur umsjón með útboðinu og hefur einnig, ásamt fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance, umsjón með fyrirhugaðri skráningu félagsins í Kauphöllina.

Áætlað er að fimmtudaginn 15. október næstkomandi geti viðskipti hafist með hluti í Símanum á Aðalmarkaði.

Ánægjuleg niðurstaða

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir ánægjulegt fyrir Arion banka að sjá þessa góðu niðurstöðu í útboðinu. „Mikil eftirspurn eftir hlutabréfum í félaginu og fjöldi fjárfesta sem tók þátt í útboðinu ber vott um traust og væntingar til félagsins. Við deilum því trausti með nýjum hluthöfum í Símanum en Arion banki á nú tæplega 7% hlut í félaginu eftir að hafa selt 21% í útboðinu,“ er haft eftir honum í tilkynningu.

Orri Hauksson, forstjóri Símans segir afar ánægjulegt að sjá hversu margir vilja fylgja Símanum fram veginn sem hluthafar.

„Skráning Símans á Aðalmarkað Kauphallarinnar er mikilvægt skref fyrir félagið, starfsfólk og hluthafa, en ekki síður viðskiptavini sem eiga sinn þátt í því hvernig fyrirtækið þróast á hörðum samkeppnismarkaði. Við hjá Símanum hlökkum til að takast á við framtíðina í skráðu félagi og bjóðum nýja hluthafa hjartanlega velkomna í hópinn.“

Frétt mbl.is: Útboð Símans hefst í dag

Áætlað er að fimmtudaginn 15. október næstkomandi geti viðskipti hafist …
Áætlað er að fimmtudaginn 15. október næstkomandi geti viðskipti hafist með hluti í Símanum á Aðalmarkaði. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK