Samfélagsmiðillinn Twitter mun segja upp stórum hópi starfsfólks í næstu viku. Jack Dorsey, stofnandi Twitter, hefur lýst því yfir að fyrirtækið leitist nú eftir því að reyna að minnka útgjöld fyrirtækisins.
Starfsmönnum úr öllum deildum fyrirtækisins og verður stór hluti þeirra líklega verkfræðingar. Um 4.200 starfa hjá Twitter og er um helmingur þeirra verkfræðingar. Miklar endurskipulagningar eru í gangi innan verkfræðiteyma fyrirtækisins. Tækniheimasíðan Re/code hefur þetta eftir ónefndum heimildarmönnum en talsmaður Twitter neitaði að tjá sig um málið og kallaði það aðeins orðróm.