Gaf út skuldabréf fyrir 43 milljarða

mbl.is/Hjörtur

Landsbankinn hf. gaf í dag út skuldabréf að fjárhæð 300 milljónir evra, eða sem nemur um 43 milljörðum króna. Bréfin eru til þriggja ára og bera fasta 3,00% vexti samkvæmt fréttatilkynningu. Þá segir að bréfin hafi verið seld á kjörum sem jafngildi 295 punkta álagi ofan á millibankavexti í evrum. Fjárfestingabankarnir Citi, Deutsche Bank og J. P. Morgan voru fengnir til þess að undirbúa skuldabréfaútgáfuna í september.

„Skuldabréfin voru seld til fagfjárfesta og bárust tilboð fyrir 470 milljónir evra frá tæplega 60 fjárfestum.  Skuldabréfin eru gefin út undir 1 milljarðs evra Euro Medium Term Note (EMTN) skuldabréfaramma Landsbankans og verða bréfin skráð í kauphöllina á Írlandi. Landsbankinn mun nýta andvirði útgáfunnar til þess að fyrirframgreiða veðtryggð skuldabréf í erlendum gjaldmiðlum sem eru á gjalddaga í október 2016 og að hluta skuldabréf sem eru á gjalddaga í október 2018, sbr. fréttatilkynningu bankans frá 18. september sl.,“ segir ennfremur.

Þá segir að Landsbankinn hafi í hyggju að vinna áfram  að því að breikka og styrkja fjármögnun bankans í erlendum gjaldmiðlum. Meðal annars þeim tilgangi að endurfjármagna útistandandi veðtryggð skuldabréf  bankans á hagstæðari kjörum. „Í framhaldi af útgáfunni í dag, en með fyrirvara um að slitastjórn LBI hf. ljúki nauðasamningi með greiðslu stöðugleikaframlags, mun Landsbankinn jafnframt greiða upp eftirstöðvar 2018 gjalddaga veðtryggðra skuldabréfa bankans í erlendum gjaldmiðlum, samtals að jafnvirði um 22 milljarðar króna. LBI hf. mun frá sama tíma ávaxta sömu fjárhæð í erlendum gjaldmiðlum með bundnum innlánum til október 2018 hjá Landsbankanum, á kjörum sem samsvara 1,50% álagi ofan á millibankavexti.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK