Áslaug Thelma Einarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðs- og kynningarmála hjá Orku náttúrunnar (ON).
Hún var áður forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála hjá Icelandair Group, verkefnisstjóri hjá Canadian Geothermal Energy Association og sviðsstjóri hjá verkfræðistofunni Mannviti. Auk þess hefur hún sinnt ýmis konar ráðgjöf við markaðsmál og viðburðarstjórnun. Áslaug sat í stjórn Rio Tinto Alcan en sagði sig úr stjórninni þegar hún réði sig til ON.
Áslaug er með BA próf í vinnusálfræði frá Arizona State University og MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík.
Starf forstöðumanns markaðs- og kynningarmála er nýtt starf hjá ON en það varð til við aðskilnað sölu- og markaðsmála í skipulagi fyrirtækisins. Um 150 umsóknir bárust um starfið, sem auglýst var í ágúst.
ON starfar á samkeppnismarkaði og selur rafmagn til heimila og fyrirtækja auk þess að framleiða heitt vatn fyrir hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu. Fyrirtækið á og rekur jarðvarmavirkjanirnar á Hellisheiði og Nesjavöllum auk vatnsaflsvirkjunar í Andakílsá.
ON rekur einnig jarðhitasýningu fyrir almenning í Hellisheiðarvirkjun. Orka náttúrunnar hlaut Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2015 fyrir Framtak ársins, uppbyggingu hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla.
Áslaug mun hefja störf hjá ON á næstu vikum.