2.255 ný fyrirtæki

Það hefur ekki farið fram hjá neinum að ferðamönnum hefur …
Það hefur ekki farið fram hjá neinum að ferðamönnum hefur fjölgað mjög á Íslandi. Eggert Jóhannesson

Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá október 2014 til september 2015, hefur fjölgað um 10% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.255 ný félög skráð á tímabilinu.

Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga er mest í rekstri gististaða og veitingarekstri, 40% á síðustu 12 mánuðum, en meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna fasteignaviðskipti (33%), framleiðslu (26%) og byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (23%). Mest hlutfallsleg fækkun nýskráninga síðustu 12 mánuði var í flutningum og geymslu, eða um 26% borið saman við næstu 12 mánuði þar áður, samkvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands.

13 fækkun gjaldþrota

Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá október 2014 til september 2015, hafa dregist saman um 13% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 716 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Gjaldþrotum í fjármála- og vátryggingastarfsemi hefur fækkað mest, eða um 30% á síðustu 12 mánuðum, auk þess sem gjaldþrotum í framleiðslu hefur fækkað um 29% frá fyrri 12 mánuðum. Gjaldþrotum síðustu tólf mánuði hefur fjölgað mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu, eða um 21% borið saman við 12 mánuði þar á undan.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK