Chris McClure hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bland.is. Hann tekur við starfinu af Katrínu Jónsdóttur.
Chris er með doktorsgráðu frá Háskóla Íslands og meistaragráðu frá Yale. Chris er kvæntur Kristínu Kristinsdóttur og eiga þau saman tvö börn. Þau búa í Hafnarfirði.
Chris er frá Bandaríkjunum og með fjölþætta reynslu af stjórnunarstörfum að því er segir í tilkynningu. Áður en hann gekk til liðs við Bland rak hann sitt eigið stefnumótunar- og markaðsfyrirtæki, sem lagði áherslu á að þjóna fyrirtækjum í heilsugeiranum. Þá var hann einnig yfirmaður rannsókna og stefnumótunar hjá Health Management Academy og starfaði einnig hjá GetWellNetwork.