Gunnar L. Gunnsteinsson hefur sagt upp störfum sem framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar (MAk) og mun láta af störfum um næstu mánaðarmót. Gunnar staðfestir þetta í samtali við Vikudag og segir ástæðu uppsagnarinnar vera af persónulegum ástæðum.
Gunnar var ráðinn framkvæmdastjóri MAk fyrir um ári síðan við samruna Hofs, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Leikfélags Akureyrar í sameiginlegt félag.