Í síðustu viku var 140 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu. Heildarveltan var 5,2 milljarðar króna og meðalupphæð á samning var 37,5 milljónir króna. Þar af voru 97 samningar um eignir í fjölbýli, 28 samningar um sérbýli og 15 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.
Á sama tíma var 24 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 18 samningar um eignir í fjölbýli og 6 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 430 milljónir króna og meðalupphæð á samning 17,9 milljónir króna.
Á Akureyri var 19 kaupsamningum þinglýst á sama tíma. Þar af voru 7 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 514 milljónir króna og meðalupphæð á samning 27,1 milljón krónur.
Þá var níu kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 6 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 270 milljónir króna og meðalupphæð á samning 30,1 milljón krónur.