Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 442,5 stig í nóvember og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,12%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 3,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9,6%. Þetta kemur fram í tölum Þjóðskrár. Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.
Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma.