34 tegundir jólabjórs og 43 vörunúmer voru í hillum ÁTVR í ár. Úrval jólabjórs hefur aldrei verið meira en minna hefur þó selst af honum en á síðasta ári.
„Það er örlítið minni sala á jólabjór í ár en var í fyrra, munar 1,6 prósent,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðar forstjóri Vínbúðarinnar.
„Það er búið að selja 634 þúsund lítra, þar af er Tuborg jólabjór með 41%: 262 þúsund lítra. Víking jólabjór er næstur með 92 þúsund og Thule þar á eftir með 73 þúsund. Síðan er það JólaKaldi með 42 þúsund.“
Í nóvember í fyrra greindi Morgunblaðið frá því að sala á jólabjór hefði aukist um 5.850% frá upphafi. Þegar bjórinn var fyrst leyfður hér á landi árið 1989 seldust 10 þúsund lítrar af jólabjór. Fyrir tíu árum seldust 268 þúsund lítrar. Á fyrra mynduðust langar raðir í Vínbúðunum á fyrsta degi jólabjórssölu en Sigrún segir það ekki hafa komið fyrir á síðustu árum að bjórinn seljist upp.
„Auðvitað koma sumar tegundir í mjög litlu magni og þá klárast þær tegundir mjög fljótt. Það eru svo sem einhverjar tegundir búnar núna en stóru tegundirnar held ég að séu almennt til,“ segir Sigrún og fullvissar blaðamann um að enn sé tími til að ná sér í eitthvað að sötra með jólamatnum.
Opið er til 22 í kvöld í öllum Vínbúðum höfuðborgarsvæðisins, á Akureyri, í Reykjanesbæ og á Selfossi en til 19 eða 20 annars staðar. Allar verslanir verða opnar á morgun, ýmist til hádegis eða til 13. Þá tekur hinsvegar við þriggja daga lokun þar sem þyrstir þurfa að bíða fram á mánudaginn 28. desember til að bæta á birgðirnar. Nánari opnunartíma má sjá hér.