Skráning hjá Já nær þrefaldaðist í verði

mynd/ja.is

Gerðar hafa verið breytingar á verðskrá Já fyrir skráningar fyrirtækja sem hefur hækkað gjald sumra fyrirtækja þeim að óvörum.

Grunnskráning hjá Já er ókeypis en í því felst nafn á fyrirtæki, heimilisfang og símanúmer. Ef fyrirtæki vilja birta frekari upplýsingar er hægt að velja um mismunandi pakka. Ódýrasti pakkinn í nýrri verðskrá kostar 5.990 krónur og sá dýrasti kostar 199.990 krónur.

Þau fyrirtæki sem vilja gera breytingar á skráningum þurfa að hafa samband fyrir áramót, samkvæmt tilkynningu frá Já, en reikningarnir eru gefnir út í lok janúar miðað við stöðu skráninga um áramót, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK