94% hlaupahjóla ekki í lagi

Yfir 94 prósent hlaupahjóla sem voru prófuð reyndust ekki í …
Yfir 94 prósent hlaupahjóla sem voru prófuð reyndust ekki í lagi. mbl.is/Golli

Yfir 94 prósent þeirra hlaupahjóla sem Neytendastofa sendi til prófunar í Frakklandi reyndust ekki í lagi. Algengast var að það væri of mikið bil á milli hreyfanlegra hluta á hjólinu eða að göt væru of stór og gætu valdið hættu á að börn klemmdu sig.

Næstalgengast var að hætta væri á að stöngin með stýrinu myndi brotna eða svigna.

Neytendastofa hefur í samstarfi við eftirlitsstofnanir í Evrópu farið í átak vegna öryggis hlaupahjóla. Skoðuð voru yfir 5.000 hlaupahjól, úr þeim voru valin um 700 hjól sem skoðuð voru nánar og af þeim tekin eintök sem send voru til prófunar í Frakklandi. Líkt og áður segir reyndust yfir 94 prósent þeirra vera ekki í lagi.

Í átakinu voru 49 módel af leikfangahlaupahjólum send til prófunar en aðeins tvö stóðust allar kröfur.

Hjól fyrir minnstu börnin féllu á prófi

Í fimmtíu prósent tilvika var talin hætta á því að börn gætu klemmt sig vegna of stórra gata eða of mikils bils milli hreyfanlegra hluta. Næstalgengast var að hætta væri á að stöngin með stýrinu myndi brotna eða svigna.

Það voru einnig prófuð hjól sem voru sérstaklega fyrir börn undir þriggja ára aldri, með 3 eða 4 hjólum sem eiga að vera stöðugri en hjólin fyrir eldri börn.

Flest þessara hjóla féllu á stöðugleikaprófinu.

Aðeins tvö sporthlaupahjól af tuttugu stóðust allar kröfur.

Sama athugasemd og var algengust varðandi leikfangahjólin átti einnig við um 70 prósent af sporthjólunum, þ.e. bilið á milli hluta og stærð á gati gat valdið hættu á að notendur klemmdu sig.

Mörg hlaupahjól voru með fleiri en eitt atriði sem var ekki í lagi.

Neytendastofa sendi nokkrar tegundir af hlaupahjólum til prófunar, af þeim hjólum var engin athugasemd gerð við hlaupahjól sem selt var í Nettó.

Aðrar tegundir fengu athugasemdir, en ekkert hlaupahjól var með það mikinn galla að það þurfti að innkalla það. 

Hlaupahjól eru tvenns konar

Hlaupahjól eru tvenns konar, annað hvort eru þau leikfang og merkt staðlinum EN 71 og CE merkt eða þau teljast vera sporthjól og merkt staðlinum EN 14619. Það er bannað að framleiða hjól og nota báða staðla.

Munurinn á milli þess að kaupa hlaupahjól sem leikfang eða sporthjól virðist ekki vera mikill þegar horft er á hjólin.

Meginmunurinn felst í því að hlaupahjól sem er CE merkt er leikfang fyrir börn undir 14 ára en sporthlaupahjól er ætlað fyrir íþróttir, þ.e. að leika listir, eða til að ferðast á milli staða.

Neytendastofa bendir á að gott sé að hafa þetta í huga áður en ákveðið er að kaupa hjól.

Leikfangahlaupahjól eru fyrir börn undir 50 kg og það eru einnig til hjól fyrir enn yngri börn eða fyrir undir 20 kg sem er ætlað fyrir 3 ára og yngri.

Það eru meiri kröfur gerðar til íþróttahlaupahjóla, þar sem ætlað er að álagið á þeim hjólum sé mun meira heldur en á leikföngum. Aðrar kröfur eru gerðar til leikfangahjóla en íþróttahjóla svo sem varðandi efnainnihald t.d. í höldum og hvort blý séu í málningunni.

Ekkert reyndist vera að hluapahjólum sem fengust í Nettó.
Ekkert reyndist vera að hluapahjólum sem fengust í Nettó. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK