Áslaug Guðrúnardóttir hefur tekið við af Berghildi Erlu Bernharðsdóttur sem kynningar- og markaðsstjóri Listasafns Reykjavíkur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Listasafninu.
Áslaug starfaði sem fréttamaður á Fréttastofu RÚV 2004-2015. Áslaug útskrifaðist með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2015 og er einnig með BA próf í heimspeki frá Háskóla Íslands.