Björn ráðinn til KEA

Björn Gíslason
Björn Gíslason

Björn Gíslason hefur verið ráðinn til starfa hjá KEA en hann mun hafa umsjón með sérhæfðum fjárfestingum fyrirtækisins.

Björn er fjörtíu ára gamall sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri en hann er að auki með M.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá sama skóla. Björn hefur hlotið löggildingu sem verðbréfamiðlari.

Björn hefur síðustu ár starfað sem rekstrarstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Stefnu á Akureyri en þar áður starfaði Björn hjá Íslenskum verðbréfum sem sjóðstjóri sérhæfðra fjárfestinga.  Björn hefur setið í stjórnum fjölda fyrirtækja á liðnum árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK