Þegar stundvísi flugfélaganna í janúar er skoðuð kemur í ljós að breska lágfargjaldaflugfélagið easyJet var stundvísast, með nærri 81% brottfara á réttum tíma og 89% koma. WOW air var aðeins á réttum tíma við lendingar í rúmlega 50% tilvika. Icelandair, sem er með langflestar brottfarir frá Keflavík, var á réttum tíma í 75% tilvika við brottför og 70% við komu. Þetta kemur fram í nýjum upplýsingum frá Dohop.
Líkur á seinkunum aukast þegar líður á daginn. Þannig eru íslensku flugfélögin oftar á réttum tíma við brottför (sem er oftast á morgnana) en við lendingar er easyJet oftar á réttum tíma enda er um fyrsta flug dagsins að ræða hjá þeim, segir í frétt frá Dohop.