Bandaríkjamaður í stjórn Wow air

Ben Baldanza kemur nú nýr inn í stjórn flugfélagsins Wow.
Ben Baldanza kemur nú nýr inn í stjórn flugfélagsins Wow. mbl.is/Golli

Bandaríkjamaðurinn Ben Baldanza hefur tekið sæti í stjórn Wow air en hann er fyrrverandi forstjóri lággjaldaflugfélagsins Spirit Airlines. Hann var forstjóri þess á árunum 2005 til 2016.

Á tíma hans sem forstjóri tók hann þátt í því að byggja félagið upp sem eitt umfangsmesta lággjaldaflugfélag Bandaríkjanna, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Hann leiddi félagið í gegnum mikið vaxtarskeið þar sem flugvélafloti þess óx úr því að hafa á að skipa 20 vélum og upp í 80 vélar. Félagið var einnig skráð á Nasdaq-hlutabréfamarkaðinn undir hans stjórn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK