Töluverður viðsnúningur á sér stað í rekstri WOW um þessar mundir en félagið hagnaðist um 400 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 280 milljóna króna tap á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs.
Tekjuvöxturinn nemur um 141% milli ára. Alls námu tekjur WOW á fyrsta fjórðungi þessa árs um fjórum milljörðum króna samanborið við 1,7 milljarða á sama tíma í fyrra.
Rekstarhagnaður án afskrifta á fyrsta ársfjórðungi (EBITDA) var 680 milljónir króna og jókst um milljarð milli ára. Líkt og áður segir var hagnaður félagsins eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi 400 milljónir króna samanborið við 280 milljóna króna tap á sama tíma í fyrra.
Á fyrsta ársfjórðungi hefur WOW air flogið með 193 þúsund farþega sem er aukning um 119% á milli ára. Sætanýtingin á fyrsta ársfjórðungi er 88% og fjölgaði framboðnum sætiskílómetrum um 164% milli ára sem er mesta aukning frá stofnun félagsins.
„Við erum mjög ánægð með árangur okkar á fyrsta ársfjórðungi enda gríðarleg aukning í bæði sætaframboði og afkomu. Við höfum vaxið hratt og það er ánægjulegt að sjá hversu vel okkur hefur tekist að ná frábærri nýtingu yfir vetrarmánuðina þrátt fyrir meira en tvöföldun á framboði,“ er haft eftir Skúla Mogensen, forstjóra og stofnandi WOW air, í tilkynningu.
„Persónulega er ég fyrst og fremst þakklátur fyrir hversu góðar móttökur við höfum fengið á Norður-Ameríkuflugi okkar sem og hversu vel WOW teymið hefur haldið utan um þennan mikla vöxt með brosi á vör,“ segir Skúli