Eitt stærsta flugfélag heims eykur umsvif sín verulega hér á landi í ár með vetrarflugi frá New York og nýrri flugleið.
Siðar í þessum mánuði ætlar bandaríska flugfélagið Delta að bæta við daglegum ferðum hingað til lands frá Minneapolis í Bandaríkjunum. Þá er þegar búið að setja í sölu beint flug milli Íslands og New York allan næsta vetur.
Flugleiðin verður þar með starfrækt allt árið um kring og verða farnar fjórar ferðir í viku næstkomandi vetur en yfir hásumarið eru brottfarirnar tvöfalt fleiri.
Túristi greinir frá þessu.
Með þessum viðbótum munu umsvif þessa risastóra flugfélags margfaldast hér á landi en Delta er jafnframt eina erlenda flugfélagið á Keflavíkurflugvelli sem ekki er evrópskt