Stórt skref stigið í átt að lækkun byggingarkostnaðar

mbl.is/Eggert

Samtök iðnaðarins fagna þeirri breytingu sem gerð hefur verið á byggingareglugerð og undirrituð hefur verið af umhverfis- og auðlindaráðherra. Þar er verið að stíga stórt skref í þá átt að gera byggingareglugerðina sveigjanlegri sem gerir hönnuðum og framleiðendum kleift að finna bestu lausnirnar við byggingaframkvæmdir.

Með breytingunum er verið að koma til móts við kröfur samtakanna um einföldun regluverks sem getur leitt til verulegrar lækkunar byggingarkostnaðar á litlum íbúðum ætlaðar einum eða tveimur einstaklingum, að því er segir í tilkynningu frá samtökunum.

Þar segir ennfremur, að SI telji þó að betra hefði verið að ráðuneytið hefði ekki fallið frá fyrstu reglugerðardrögum þar sem gert hafi verið ráð fyrir að dregið væri úr rýmiskröfum fyrir allar íbúðir óháð stærð þeirra.

„En í reglugerðinni eru tilslakanir í rýmiskröfum einungis látnar ná til íbúða sem eru allt að 55 fermetrar að stærð. Ganga hefði átt lengra í breytingunum og láta þær ná til allra íbúða eins og drögin gerðu ráð fyrir eða í það minnsta til íbúða allt að 90 fermetra að stærð enda er mikill skortur á íbúðum í þeim stærðarflokki sem henta ungu fjölskyldufólki með tvö börn eða fleiri. Með takmörkunum við íbúðir allt að 55 fermetrum er verið að missa af tækifærum til að uppfylla þarfir ungs fjölskyldufólks,“ segja samtökin.

Ennfremur segir, að með reglugerðinni séu kröfur um lágmarksstærðir rýma í íbúðum felldar brott sem veiti ákveðið frelsi við útfærslu hönnunar. Breytingarnar miði fyrst og fremst að því að auka sveigjanleika við gerð íbúðarhúsnæðis þannig að lágmarksstærð íbúðar sem sé eitt herbergi geti minnkað verulega. Breytingarnar lúti einnig að því að minniháttar framkvæmdum sem undanþegnar eru byggingarleyfi fjölgi og verði þær í stað þess tilkynningarskyldar.  Þá séu gerðar ákveðnar breytingar varðandi bílastæði, sorpgeymslur og loftræstingu íbúða.

„Í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu er hafinn undirbúningur að gerð frumvarps til laga um breytingu á lögum um mannvirki, nr. 160/2010, og skipulagslögum, nr. 123/2010, þar sem áhersla verður lögð á einföldun stjórnsýslu byggingarmála með lækkun byggingarkostnaðar vegna íbúðarhúsnæðis að leiðarljósi. Mikilvægt er að Samtök iðnaðarins komi að þeirri undirbúningsvinnu,“ segir ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK