Landsvirkjun semur við Thorsil

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að samningurinn sé hagstæður fyrir …
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að samningurinn sé hagstæður fyrir báða aðila. mbl.is/Golli

Landsvirkjun og Thorsil hafa skrifað undir samning um afhendingu á rafmagni til kísilvers Thorsil í Helguvík í Reykjanesbæ. Um er að ræða allt að 55 megavött af afli eða sem samsvarar 460 gígavattstundum af orku á ári. Afhending hefst árið 2018 þegar ráðgert er að gangsetja kísilverið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Þar segir ennfremur, að orkan verði afhent í áföngum úr núverandi aflstöðvakerfi Landsvirkjunar. „Sem kunnugt er hefur fyrirtækið nú tvær virkjanir í byggingu, stækkun Búrfellsvirkjunar og jarðvarmavirkjun að Þeistareykjum,“ segir í tilkynningunni.

Samingurinn þarf að hljóta samþykki ESA

Þá kemur fram, að samningurinn sé háður tilteknum skilyrðum og þurfi meðal annars að hljóta samþykki Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) til þess að öðlast fullnaðargildi.

Jafnframt segir, að kísilver Thorsil muni framleiða um 54.000 tonn af kísilmálmi á ári og nota til þess 87 MW af raforku, eða um 730 GWst á ári. Um 130 starfsmenn munu starfa hjá verksmiðjunni.

Hagstætt verð

„Það er ánægjulegt að bjóða Thorsil velkomið í raforkuviðskipti við Landsvirkjun. Verkefni Thorsil í Helguvík er kærkomin viðbót við þá uppbyggingu iðnfyrirtækja sem á sér stað í Reykjanesbæ. Samningurinn er hagstæður fyrir báða aðila og í samræmi við þá stefnu Landsvirkjunar að fá hagstætt verð fyrir þá endurnýjanlegu orku sem byggir á auðlindum okkar Íslendinga,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, í tilkynningu. 

„Undirritun þessa samnings við Landsvirkjun er lokaskrefið í vönduðu undirbúningsferli þessa verkefnis. Með þessum samningi hefur Thorsil tryggt alla orkuþörf kísilvers síns í Helguvík. Við fögnum samstarfinu við Landsvirkjun og  gleðjumst yfir því að eiga kost á umhverfisvænni orku til að framleiða kísilmálm sem nýttur verður til að draga úr áhrifum umsvifa mannsins á umhverfið,“ segir John Fenger, stjórnarformaður Thorsil, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK