N1 hefur opnað nýjar sjálfsafgreiðslustöðvar á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu undir nýju vörumerki sem nefnist DÆLAN.
Í tilkynningu segir að sjálfsafgreiðslustöðvarnar séu frábrugðnar N1-stöðvunum á þann hátt að DÆLAN leggi áherslu á lágt eldsneytisverð fyrir alla óháð því hvort þeir séu með N1-kortið eða ekki.
N1-korthafar geta notað viðskiptakortið til að greiða fyrir eldsneyti á DÆLUNNI en sérstök afsláttarkjör gilda ekki þar sem dæluverðið er lægra en þekkist annars staðar.
DÆLAN er í dag staðsett í Fellsmúla, við Smáralind og Staldrið í Reykjavík.
N1-korthafar njóta áfram afsláttarkjara á öðrum stöðvum N1, safna þar inneignarpunktum auk þess sem þeir geta nýtt sér ný kortatilboð í hverjum mánuði.